19.5.2008 | 09:40
Ný vika - tóm gleði
Reif mig upp klukkan sjö í morgun til að fara í Boot camp í nýju skónum, sem sagt búið að vígja gripina og reyndust þeir bara vel. Stefni á almennilega hreyfiviku þar síðasta vika fór bara í rugl, leti, veikindi og þynnku.
Fór á fund hjá Búlandstindi þar sem voru planaðir nokkrir sniðugir hittingar í sumar, gaman að sjá hvernig fólk tekur í þetta.
Síðan er stefnt á Snæfellsjökul næsta laugardag því þá verður pottþétt Þórólfsveður :)
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.