4.10.2007 | 21:55
Mér finnst rigningin góð ....
London var algjör snilld, ég og Bryndís lentum á föstudegi í ausandi rigningu þannig að við neyddumst til að sitja og drekka bjór allan daginn : ) - hittum svo Rán eftir vinnu og eyddum kvöldinu heima í slotinu hennar. Skemmti mér rosalega vel enda erfitt að leiðast í þessum félagsskap, skál í boðinu og takk fyrir frábæra helgi.
Annars er lítið um að vera - nóg að gera í vinnunni en er samt alltaf búin snemma, komin heim klukkan sex á daginn sem er algjör lúxus.
Hvað þýðir það þegar maður þarf allt í einu að hlægja ótrúlega mikið af sjálfum sér ? Var að hugsa um hvernig ég gæti hrekkt frænkuna sem er í pössun hjá mér og áður en ég komst í verkið þá var ég búin að hlægja svo mikið af sjálfri mér að ég nennti ekki að framkvæma verkið !! Ætli ég sé endanlega að verða klikkuð ???'
Er að reyna að skilja veðurspána - verður rigning eða ekki á laugardag ? missti af krakkaveðrinu og er þess vegna svoltið í myrkrinu hérna !! Spurning um að fara í göngu á laugardag, veitir ekki af að fara að koma sér í smá gönguform eftir frekar góða pásu. Hætta að væla yfir því að það sé alltaf rigning og fara bara í regnfötin, held reyndar að ofurregnjakkinn minn mígleki :(
Athugasemdir
Hei... skratti er nú gott að sjá að þú ERT farin að blogga aftur. Tvær færslur með stuttu millibili. Snilld.
Heiðar Birnir, 5.10.2007 kl. 08:42
Jebb hér er allt að gerast :) - sjáumst í göngu !!
Formaðurinn, 5.10.2007 kl. 21:19
Djöfull er ég ánægð með þig.. maður var farin að sakna þess að fá ekki blogg frá þér. Það er nú langt um skárra að hripa niður eitt blogg á dag og sleppa bara ræktinni í staðinn.. ha,ha!!
En enn og aftur takk fyrir frábæra helgi.
Knús og kossar,
Ran
Robbery (IP-tala skráð) 12.10.2007 kl. 15:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.