14.5.2008 | 21:48
Hvítasunnublús
Erfitt að byrja nýja viku eftir svona mikla leti.
Mætti ekki í bootcamp á mánudag, gerði ekkert nema sofa á þriðjudag, mætti ekki í bootcamp á miðvikudag og er komin með hálsbólgu.... hversu ömurlegt hljómar þetta, akkúrat núna þegar það er að koma sumar, nenni hvorki né vil vera í svona leiðindum, þannig að á morgun ætla ég að vera ofurspræk !!
Fór á kynningarfund í hádeginu um M.sc í Fjármálum í HR. Virkaði enn meira spennandi eftir að hafa farið á fundinn þannig að nú er bara að krossa puttana að ég komist inn, lagði nebblega ekkert rosalega mikið í umsóknina og sé svolítið eftir því núna !! En ég fæ að vita á morgun.
Bryndís og Einar duttu í lukkupottinn og fengu miða í New York maraþonið, til hamingju, hlakka til að taka þátt í undirbúningnum og hlakka til að þurfa alls ekki að taka þátt í sjálfu hlaupinu :)
Annars held ég að það hvíli bölvun á nýju hlaupaskónum mínum þar sem ég hef ekki hreyft mig síðan ég keypti þá, þarf að unjinxa þá HRATT.
Athugasemdir
Líst mér vel á þetta með undirbúninginn - auðvitað skellir þú þér svo bara út og heldur á vatninu fyrir okkur og svoleiðis.. nuddar kannski þreytta leggi ;-) it´s a plan - eigum nú eftir að fara til NY saman... get lofað þér pottþétt fjör (eftir maraþonið þ.e.a.s....)
Bryndís (IP-tala skráð) 15.5.2008 kl. 08:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.